Fyrningarleið „algert feigðarflan"

Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Grindavík.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Grindavík.

Framboð Samfylkingarinnar í Grindavík hefur sent frá sér tilkynningu þar sem andstaða við fyrningarleið í sjávarútvegi er áréttuð. „Við Samfylkingarfólk í Grindavík höfum aldrei farið leynt með það að við höfnum þessari leið og teljum hana algert feigðarflan," segir í tilkynningunni.

„Hið nýja stjórnmálaafl í Grindavík, G-listinn, sendi í gær frá sér fréttatilkynningu þar sem að þeir undra sig á afstöðuleysi annarra flokka í bænum gagnvart fyrningarleiðinni svonefndu. Þessi tilkynning þeirra er að mörgu leyti góð og gild en er engu að síður það fyrsta sem kemur frá þeim herbúðum um þetta stóra hagsmunamál okkar Grindvíkinga.

Kannski að þeir hafi kveikt á perunni varðandi þessi mál eftir mjög upplýsandi fundi með útgerðarmönnum á undanförnum dögum. Við Samfylkingarfólk í Grindavík höfum aldrei farið leynt með það að við höfnum þessari leið og teljum hana algert feigðarflan.

Við sem erum í fararbroddi fyrir framboðslistann í komandi sveitarstjórnarkosingum höfum hafnað henni bæði í ræðu og í riti. Við teljum að með henni sé vegið mjög alvarlega að þeim góðu fyrirtækjum sem hér eru rekin og hafa haldið uppi atvinnustiginu áratugum saman," segir í tilkynningu frá Samfylkingunni í Grindavík.

Fram kemur að þann 6.maí á síðasta ári hafi allir bæjarstjórnarmenn í Grindvík, þeirra á meðal fulltrúar Samfylkingarinnar, staðið að eftirfarandi bókun að loknum fundi með úterðarmönnum:

,,Bæjaryfirvöld í Grindavík eru sammála um að fyrningarleiðin sé ekki ásættanleg fyrir byggðina og hafna því harðlega að hún verði farin núna. Bæjarbúar í Grindavík hafa alltaf verið sammála um að sjávarútvegur sé lífæðin og grundvallaratvinnugrein byggðarinnar. Grindvíkingar hafa oftar en einu sinni verið settir í óvissu vegna umræðu innan stjórnmálaflokka um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Mikilvægt er að skapa ró um sjávarútveg og fiskvinnslu þannig að horfa megi til lengri tíma. Í Grindavík hafa menn lagt sig alla fram um að skapa atvinnu og halda fyrirtækjum gangandi. Það á að vera keppikefli allra að byggja áfram á grunnstoðum sjávarútvegsins. Fiskveiðar og vinnsla hafa verið okkar haldreipi í gegnum tíðina, eins og hefur sýnt sig best í verstu kreppu sem riðið hefur yfir þjóðina.

Þess vegna ber að halda kvóta í heimabyggð og sækja fram á við, hvað sem á dynur. Sterk fyrirtæki í Grindavík gagnast öðrum sveitarfélögum, eins og hefur sýnt sig.

Atvinnulífið í Grindavík er með því besta sem gerist á landinu í dag. Bæjaryfirvöld standa umfram allt vörð um hagsmuni bæjarbúa og vara við því að hrykkt verði í þeim styrkum stoðum atvinnulífsins sem sjávarútvegurinn er."

Í tilkynningu Samfylkingarinnar í Grindavík segir ennfremur að hjarta sjávarútvegarins slái ört í Grindavík. „Við samþykkjum ekki að skorið verði á slagæð þessara atvinnugreinar. Íslendingar verða átta sig á að um er að ræða undirstöðu atvinnugrein landsins sem við eigum svo mikið undir. Við hljótum að geta náð sátt um fiskveiðistjórnina á heildstæðan og skynsamlegan hátt þegar það þjónar hagsmunum samfélagsins best."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert