Tekist á um ársreikning Hafnarfjarðar

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður. www.mats.is

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði gagnrýna meirihluta Samfylkingarinnar fyrir breytingar á ársreikningi bæjarfélagsins fyrir árið 2008, samkvæmt tilkynningu frá sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði. 

Í tilkynningunni segir meðal annars: „Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði gagnrýna harðlega þau vinnubrögð meirihluta Samfylkingarinnar að hafa breytt ársreikningi bæjarins 2008 þannig að rekstrarhalli samstæðunnar, þ.e. A og B hluta var ekki 4,2 milljarðar heldur hvorki meira né minna en 5,6 milljarðar króna."

Segir í tilkynngunni að í endurskoðuðum ársreikningi 2009 komi fram að söluhagnaður af eignarhlut Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja „reyndist tæplega 1,5 milljarði króna lægri en bókfært var í ársreikningi ársins 2008. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sem hafði fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar til skoðunar s.l. vetur hafði óbreyttan ársreikning 2008 til grundvallar við mat á fjárhagslegri stöðu bæjarfélagsins."

Þá kemur fram að á fjárhagsáætlun sem samþykkt var um síðastliðin áramót hafi gert ráð fyrir 500 milljóna króna rekstrarafgangi en niðurstaðan nú við endurskoðaða ársreikninga hafi orðið meira en tveimur milljörðum króna lakari.

"Heildarskuldir Hafnarfjarðarbæjar eru nú 41,7 milljarðar króna og því nema  nú skuldir bæjarins 1,6 milljón króna á hvern bæjarbúa. Þetta þýðir að skuldabaggi bæjarins er um 9 milljónir króna á hverja fimm manna fjölskyldu´," segir í tilkynningunni. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert