Málefnasamningur undirritaður á Hesteyri

Hesteyri
Hesteyri Af vef Bæjarins besta

Skrifað verður undir samning um áframhaldandi meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar á Hesteyri í Jökulfjörðum í kvöld.

Að sögn Albertínu Friðbjargar Elíasdóttur, oddvita Framsóknarflokksins liggur málefnasamningur fyrir og hafa bæði fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarfélag Ísafjarðarbæjar samþykkt hann, segir á vef Bæjarins besta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert