Dorrit: Setti starf mitt í biðstöðu

„Ég veit það ekki. Ég hreinlega veit það ekki. Ég tel þó að verði hann áfram á forsetastóli gefi ég starf mitt hjá fjölskyldufyrirtæki mínu algjörlega upp á bátinn. Þetta er svo miklu mikilvægara,“ segir Dorrit Moussaief forsetafrú spurð hvað hún hyggist gera nái Ólafur ekki kjöri.

Þetta segir Dorrit í viðtali við Fréttatímann sem kom út í dag.

„Ég setti starf mitt þar í biðstöðu og hafði alltaf hugsað mér að sinna því síðar, þegar Ólafur yfirgæfi Bessastaði,“ segir Dorrit í viðtalinu.

Ættuð frá Úsbekistan

Dorrit rekur ættir sínar til Úsbekistans, en fæddist í Jerúsalem. Hún er dóttir skartgripasalans og milljarðamæringsins Schlomos Moussaieffs og móðir hennar heitir Alisa og er austurrísk. Bæði koma þau enn að fjölskyldufyrirtækinu þótt á níræðisaldri séu og rekur móðir hennar fjölskyldufyrirtækið burðuga ásamt systur hennar.

Hún ólst upp í Ísrael, bjó þar fyrstu 13 árin en flutti síðan til Englands. Hún átti erfitt með nám vegna lesblindu og segir kennara ekki hafa sýnt því skilning. 

„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði ókei. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.

Er lesblind og með ADHD

Eins skrýtið og það hljómar þá hafði þetta heldur ekki áhrif á sjálfstraust mitt,“ segir Dorrit sem aldrei hefur farið í felur með lesblindu sína og nýlega greindist hún með ofvirkni og athyglisbrest, ADHD.

„Ég hef alltaf vitað að ég væri með ADHD og hef í gegnum tíðina haft mikinn stuðning og stuðningskerfi í rekstri mínum. En hér hafði ég ekki þennan stuðning,“ segir hún.

„Fólk skildi ekki af hverju ég spurði þrisvar sömu spurningarinnar. Það sendi mér skilaboð sem ég kannaðist ekkert við að hafa fengið. Ég lagði eitthvað frá mér og mundi ekkert tveimur mínútum seinna hvar og áður en ég tók fleiri verkefni að mér hér hjá forsetaembættinu hafði ég hugsanlega tvíbókað mig. Svo ég hugsaði sem svo að ég yrði að sækja mér meiri þekkingu, svo ég gæti starfað betur án stuðningskerfisins.“

Hún segir þetta hafa haft mikil áhrif á samband þeirra hjónanna, en hann hafi sýnt henni mikinn skilning og kynnt sér bæði lesblindu og ADHD.

Dorrit segist í viðtalinu hafa fallið fyrir hreina vatninu og hreina loftinu á Íslandi. Hún játar að veðrið hafi ekki heillað hana við fyrstu sýn.

Viðtalið við Dorrit í Fréttatímanum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert