Jón Gnarr í 5. sæti í Reykjavík norður

Jón Gnarr borgarstjóri.
Jón Gnarr borgarstjóri. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, verður í fimmta sæti á lista Bjartrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir þingkosningarnar í vor.

Tillögur að uppstillingu í 4-5 efstu sætum á listum Bjartrar framtíðar voru samþykktar einróma á stjórnarfundi flokksins í gær.

Atli Fannar Bjarkason, upplýsingafulltrúi Bjartrar framtíðar, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Hann segir að listarnir verði kynntir í heild á nýju ári.

Í hádeginu upplýsti Jón að hann muni vera í fimmta sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður, en þetta kemur fram í Dagbók borgarstjóra á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert