Mikilvægt að menn ræði saman

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ásamt þeim Eygló Harðardóttur og …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ásamt þeim Eygló Harðardóttur og Sigurði Inga Jóhannssyni. mbl.is/Árni Sæberg

„Lykilskilaboð frá kjósendum voru krafan um betri vinnubrögð á Alþingi. Meira um samvinnu þvert á flokka,“ segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, á facebooksíðu sinni í dag. Undir þetta hafi forystumenn í öllum stjórnmálaflokkum tekið í aðdraganda kosninganna um síðustu helgi.

„Ég vona svo sannarlega að fólk hafi verið að meina það og taki undir með okkur framsóknarmönnum um mikilvægi þess að menn ræði saman, en detti ekki niður í hefðbundna valdapólitík.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert