Ríkisstjórnin með 43% fylgi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson
Stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks myndi falla yrði gengið til kosninga nú samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Stjórnarflokkarnir tapa fylgi og mælast samanlagt með 43,4 prósent. Þeir fengju miðað við það 28 þingmenn samanlagt, en eru í dag með 38. Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu fylgi en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar miklu fylgi frá því í kosningunum í vor.

Samfylkingin bætir verulega við fylgi sitt og mælist með 20,8 prósent, en fékk 12,9 í síðustu þingkosningum. Björt framtíð hækkar úr 8,2 prósenta kjörfylgi í 13,7 prósent samkvæmt könnuninni.

Fylgi Framsóknarflokksins hefur hins vegar gefið verulega eftir frá því hann fékk 24,4 prósenta fylgi í síðustu kosningum. Hann mælist nú með 16,7 prósenta fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn er enn stærsti flokkurinn og nýtur stuðnings 26,7 prósenta, sem er  sama og flokkurinn fékk í kosningum.

Stuðningur við Vinstri græna minnkar er nú 13,6 prósent sem er yfir kjörfylgi flokksins, sem var 10,9 prósent. Píratar njóta meiri stuðnings nú en í kosningunum, 7,2 prósent styðja flokkinn nú, samanborið við 5,5 prósent í kosningunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert