Framsóknarfélag Fjarðabyggðar samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar að lista Frjálsra og Framsóknar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Fjarðabyggð í gærkvöldi.
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar leiðir listann en Eiður Ragnarsson viðskiptafulltrúi, Pálína Margeirsdóttir verslunarmaður, Hulda Sigrún Guðmundsdóttir skólaliði og Svanhvít Yngvadóttir kennari skipa næstu fjögur sæti.