„Drögum ekki fylgi frá öfgahópum“

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina. mbl.is

Við höfum ekki á tilfinningunni að við séum að draga að okkur fylgi frá öfgahópum,“ sagði Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í þættinum Stóru málin á Stöð 2 nú í kvöld. 

Tals­verð umræða hef­ur skap­ast að und­an­förnu um lóðarút­hlut­un­ina í kjöl­far þess að Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, odd­viti fram­boðs Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug­vall­ar­vina til borg­ar­stjórn­ar, lýsti því yfir að hún teldi að aft­ur­kalla ætti lóðina í Soga­mýri og leggja málið í dóm borg­ar­búa í sér­stakri kosn­ingu. 

„Við höfum fengið á okkur ómálefnalega gagnrýni, meðal annars frá Sóleyju Tómasdóttur, sem sagði að Framsókn ætti ekki að fá neinn borgarfulltrúa,“ bætti Sveinbjörg við.

Aðspurð hver hennar skoðun væri á úthlutun á lóðum undir trúfélög sagði hún: Ég vil að Reykvíkingar hafi eitthvað um það að segja um hvort Reykjavík eigi að gefa lóðir undir trúfélög. Ég tel það sé rétt að alþingi endurskoði lögin.“ Sagði Sveinbjörg að það ætti jafnt við um úthlutun til þjóðkirkjunnar jafnt sem annarra trúfélaga.

Björn Blöndal, oddviti Bjartar framtíðar sagði þetta hafa verið augljóst kosningatrikk frá Framsókn og flugvallarvinum. Hann sagði Sveinbjörgu hafa í tilkynningu tengt úthlutunina við húsnæðisvandann í Reykjavík.

 „Hún sagði að með því að sleppa því að gefa þessa lóð séum við að laga húsnæðisvandann. Ef það er ekki að ala á ótta, þá veit ég ekki hvað er. Hvað vakir fyrir fullorðnu fólki að sitja í einhverju bakherbergi og kokka upp einhverja svona vitleysu,“ sagði Björn. 

Frétt mbl.is: Ekki hægt að afturkalla lóðina

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert