Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði hafa gert með sér samkomulag um meirihlutamyndun í bæjarstjórn. Samstarfið er byggt á málefnasamningi sem kynntur verður nánar á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar 18. júní.
Guðlaug Kristjánsdóttir verður forseti bæjarstjórnar og Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs.
Helstu markmið og verkefni eru eftirfarandi:
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar munu kappkosta að því að vinna að gerð langtímastefnu um framtíð bæjarins á kjörtímabilinu og að leitað verði eftir frumkvæði og þátttöku bæjarbúa og samstöðu innan bæjarstjórnar,“ segir í fréttatilkynningu.
„Vönduð og skilvirk stjórnsýsla sem nýtir sér nýjustu þekkingu og tækni er forsenda fyrir velgengni bæjarins. Lögð er áhersla á ábyrga og trausta fjármálastjórnun með skýr og mælanleg langtímamarkmið.
Mikilvægt er að hafa samráð við notendur þegar þjónusta er mótuð og styðja frumkvæði og áhuga bæjarbúa, félagasamtaka og grasrótarhreyfinga í hvers kyns samfélagsverkefnum sem stuðla að bættum hag og góðri líðan bæjarbúa í virku samfélagi. Umhverfisvitund, mannréttindi, lýðræði og lýðheilsa verður í forgrunni í allri stefnumótun á kjörtímabilinu og hugað að samþættingu þvert á málaflokka. Aðgengi fólks að þjónustu og upplýsingum þarf að vera tryggt, hvort sem horft er til sérþarfa svo sem vegna fötlunar, uppruna eða aldurs. Hafnarfjörður er fjölskylduvænn bær – sem horfir björtum augum til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.
Fyrstu verkefni nýrrar bæjarstjórnar: