Rannsaka minnkandi kjörsókn

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. mbl.is/Ómar

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra undirritaði í dag samstarfssamning sem felur í sér rannsókn á kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum sem fóru fram í lok maímánaðar. Rannsóknin er samstarfsverkefni innanríkisráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og doktorsnema við Háskólann í Mannheim.

Rannsóknin miðar að því að kanna ástæður fyrir minnkandi kjörsókn, en sem kunnugt er var kjörsókn í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum minni en hún hefur nokkru sinni verið í sögu lýðveldisins. Á landinu öllu var heildarkjörsókn 65,9% og í stærstu sveitarfélögum landsins, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, var hún alls staðar undir 63%. Í kosningunum 2010 hafði kjörsókn minnkað mikið frá því í kosningunum áður eða frá 78,7% árið 2006 niður í 73,5%.

Í frétt á vef innanríkisráðuneytisins segir að leitað verði svara við þeim spurningum af hverju kjósendur hafi tekið þátt eða ekki, hvaða áhrif það hafi haft og hvernig hægt sé að bregðast við því.

Hanna Birna segir að rétturinn til að kjósa sé mikilvægur þáttur í lýðræðissamfélagi og það sé því áhyggjuefni ef færri kjósendur nýta sér þennan rétt. „Við teljum rétt að láta kanna ástæður þess og við vonum að þessi rannsókn varpi ljósi á það. Í framhaldinu munum við, ásamt fjölmörgum öðrum aðilum, ræða með uppbyggilegum og jákvæðum hætti lausnir og leiðir til að tryggja áfram öfluga þátttöku í kosningum á Íslandi,“ er haft eftir henni í fréttinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert