Stuðningsmenn Höllu fagna

Halla Tómasdóttir og fjölskylda.
Halla Tómasdóttir og fjölskylda. mbl.is/Árni Sæberg

Mikil fagnaðarlæti brutust út í kosningamiðstöð Höllu Tómasdóttur þegar fyrstu tölur voru kynntar nú rétt í þessu. Stuðningsmenn Höllu flykkjast nú í Bryggjuna brugghús við Grandagarða þar sem kosningvaka Höllu fer fram. 

Björn Skúlason, eiginmaður Höllu, kveðst afar ánægður með daginn, þau fjölskyldan og stuðningsmenn finna fyrir miklum meðbyr og kveðst hann mjög meyr yfir viðbrögðunum. „Ég veit ekki hvort það séum bara við sem erum inni í einhverri búblu en við finnum fyrir gríðarlegum stuðningi, og á samfélagsmiðlunum ekki síður, segir Björn í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert