Ásmundur sækist eftir 1.-2. sæti

Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur Friðriksson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst bjóða sig fram í 1.-2. sæti á lista flokksins fyrir prófkjör í Suðurkjördæmi sem fram fer 10. september nk.

„Þegar líður að kosningum og raðað verður að nýju á lista flokksins er mikilvægt að kjósendur hafi frjálsar hendur um uppstillingu á listann en Sjálfstæðisflokkurinn hefur treyst kjósendum flokksins fyrir því vali. Ég hef haft mikla ánægju af því að vinna fyrir alla íbúa í kjördæminu frá síðustu kosningum, deila með þeim gleði og sorg og taka undir vagninn með fólki þegar aðstoðar hefur verið þörf.

Ég lýsi því yfir að ég er tilbúinn til að taka að mér forystuhlutverk á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir Alþingiskosningarnar í haust ef ég fæ til þess stuðning, en af hógværð sækist ég eftir 1. – 2. sæti. Ég hef sýnt það að ég læt verkin tala og stend með sannfæringu minni eins og fram hefur komið í mörgum málum. Ég mun halda áfram á þeirri braut sem ég hef markað mér og vinna með fólkinu og atvinnulífinu í Suðurkjördæmi fái ég til þess stuðning í prófkjörinu 10. september,“ segir í tilkynningu frá Ásmundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert