Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra sækist eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í Suðurlandskjördæmi.
„Ég hef verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í sjö ár og leitt flokkinn í kjördæminu í gegnum tvennar kosningar. Á þeim tíma hefur Suðurkjördæmi orðið eitt sterkasta vígi flokksins á landsvísu. Það hafa verið sannkölluð forréttindi að vinna með öllu því kröftuga og öfluga fólki sem í kjördæminu býr að fjölmörgum viðfangsefnum, stórum og smáum. Ég býð mig fram til áframhaldandi forystu í kjördæminu og óska eftir stuðningi í 1. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í prófkjöri flokksins 10. september,“ segir hún á Facebook-síðu framboðsins.