Smári McCarthy er efsti maður á lista Pírata í Suðurkjördæmi að loknu prófkjöri og liggur listi flokksins nú fyrir. Einn dró framboð sitt til baka.
113 manns af þeim 413 sem voru með kosningarétt kusu í prófkjörinu og auk Smára eru í efstu sætum þau Oktavía Hrund Jónsdóttir, Þórólfur Júlían Dagsson, Álfheiður Eymarsdóttir, Elsa Kristjánsdóttir, Kristinn Ágúst Eggertsson, Trausti Björgvinsson og Albert Svan.
Kosningu í prófkjöri Pírata í höfuðborginni lýkur klukkan sex í kvöld og í Norðvesturkjördæmi lýkur kosningu klukkan sex næstkomandi mánudag.