Katrín og Svandís leiða í Reykjavík

Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG, og Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, leiða …
Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG, og Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, leiða lista flokksins í Reykjavík. mbl.is/Golli

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi þingkosningum. Svandís Svavarsdóttir leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. 

Listar flokksins voru samþykktir á félagsfundi nú í kvöld. Í efstu sex sætum listans eru fjórar konur og tveir karlar. Í öðru sæti í norður er Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður en Kolbeinn Óttarsson Proppé, ráðgjafi og fyrrverandi blaðamaður á Fréttablaðinu, er í öðru sæti í suður.

Í þriðja í norður er Andrés Ingi Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur og Iðunn Garðarsdóttir laganemi er í fjórða sæti. Í þriðja sæti í suður er Hildur Knútsdóttir og í því fjórða er Gísli Garðarsson fornleifafræðingur.

Listarnir í heild sinni:

Norður:

  1. Katrín Jakobsdóttir alþingismaður
  2. Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður
  3. Andrés Ingi Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur
  4. Iðunn Garðarsdóttir laganemi
  5. Orri Páll Jóhannsson þjóðgarðsvörður
  6. Álfheiður Ingadóttir ritstjóri
  7. Þorsteinn V. Einarsson deildarstjóri
  8. Gyða Dröfn Hjaltadóttir háskólanemi
  9. Ragnar Kjartansson listamaður
  10. Guðrún Ágústsdóttir, formaður öldungaráðs Rvk
  11. Ragnar Karl Jóhannsson uppeldis- og menntunarfræðingur
  12. Jovana Pavlovic háskólanemi
  13. Atli Sigþórsson tónlistarmaður
  14. Sigríður Stefánsdóttir réttarfélagsfræðingur
  15. Ásgrímur Angantýsson lektor
  16. Brynhildur Björnsdóttir leikstjóri
  17. Meisam Rafiei taekwondo-þjálfari
  18. Auður Alfífa Ketilsdóttir fjallaleiðsögumaður
  19. Sigríður Thorlacius söngkona
  20. Erling Ólafsson kennari
  21. Birna Þórðardóttir ferðaskipuleggjandi
  22. Sigríður Kristinsdóttir sjúkraliði

Suður:

  1. Svandís Svavarsdóttir alþingismaður
  2. Kolbeinn Óttarsson Proppé ráðgjafi
  3. Hildur Knútsdóttir rithöfundur
  4. Gísli Garðarsson fornfræðingur
  5. Ugla Stefanía Jónsdóttir hinsegin aðgerðarsinni
  6. René Biasone teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun
  7. Þóra K. Ásgeirsdóttir verkefnastjóri hjá Almannavörnum
  8. Níels Alvin Níelsson sjómaður
  9. Elísabet Indra Ragnarsdóttir tónlistafræðingur
  10. Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari
  11. Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari
  12. Indriði Haukur Þorláksson fyrrverandi ríkisskattstjóri
  13. Guðrún Yrsa Ómarsdóttir hjúkrunarfræðingur
  14. Björgvin Gíslason gítarleikari
  15. Þóra Magnea Magnúsdóttir sérfræðingur
  16. Egill Ásgrímsson pípulagningameistari
  17. Steinunn Rögnvaldsdóttir mannauðsráðgjafi
  18. Jón Axel Sellgren mannfræðinemi
  19. Halldóra Björt Ewen framhaldsskólakennari
  20. Úlfar Þormóðsson rithöfundur
  21. Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands
  22. Jónsteinn Haraldsson skrifstofumaður
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert