„Ég held að við eigum mikið inni og við eigum eftir að sjá miklar breytingar og sveiflur síðustu vikuna fyrir kosningar,“ segir Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins í samtali við mbl.is.
Framsóknarflokkurinn mælist með 9,1% fylgi í skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið á fylgi flokkanna fyrir alþingiskosningarnar, sem fara fram 29. október.
Frétt mbl.is: Áfram sveiflast fylgið
„Við erum að fá jákvæðar móttökur þar sem við komum og ég tel að við eigum mikið fylgi inni sem mun skila sér á kjördag. Eina skoðanakönnunin sem skiptir máli er sú sem er á kjördag,“ bætir Karl við.
Hann telur að kannanir fyrir kosningar gefi ekki alltaf rétta mynd af þeim fjölda stuðningsmanna sem flokkurinn á. „Ég held að dæmin sýni að Framsóknarflokkurinn á alltaf inni í kosningum. Margir dyggir stuðningsmenn flokksins eru ekki að taka þátt í netkönnunum eða þegar hringt er í þá og ég er viss um að þetta fylgi og meira til mun skila sér á kjördag.“
Miðað við áðurnefnda könnun missir Karl sæti sitt á þingi. Hann hefur þrátt fyrir það ekki teljandi áhyggjur af stöðunni. „Ég hef engar sérstakar áhyggjur af því og stefni á að vera áfram á þingi.“