Afskipti erlendra aðila fordæmalaus

Sigurður Ingi mætti ásamt eiginkonu sinni Elsu Ingjaldsdóttir og kaus …
Sigurður Ingi mætti ásamt eiginkonu sinni Elsu Ingjaldsdóttir og kaus á Flúðum um tíuleytið í morgun. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson

„Ég er bjartsýnn fyrir því sem kemur upp úr kjörkössunum í  kvöld og í nótt,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Sigurður Ingi mætti ásamt eiginkonu sinni Elsu Ingjaldsdóttir og kaus á Flúðum um tíuleytið í morgun.

Hann segir daginn leggjast vel í sig þrátt fyrir leiðindaveður. „Það hefur verið gaman síðustu dagana í kosningabaráttunni. Mikil jákvæðni og bara góður hljómgrunnur fyrir okkar hugmyndum um það sem gera þurfi á næsta kjörtímabili.“

Í dag ætlar Sigurður á keyra á milli kosningaskrifstofa í kjördæminu en mun síðan enda á höfuðborgarsvæðinu í kvöld. „Þetta er einn dagurinn á fullri ferð til viðbótar.“

Sigurður Ingi gengur sáttur til kosninga en hann er ánægður með kosningabaráttuna. „Hún hefur verið mjög fín, stutt auðvitað, á óvenjulegum tíma og meira á samfélagsmiðlunum en áður.“

Þá segir Sigurður Ingi auglýsingar erlendra aðila sem vildu losna við núverandi ríkisstjórn það eftirtektaverðasta úr baráttunni.

„Það sem er eftirtektarverðast eftir á er þetta óvænta inngrip þessara erlendu aðila sem auglýstu í íslenskum fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þar sem þeir voru að auglýsa það að þeir vildu losna við núverandi ríkisstjórn þar sem  hún hefði að þeirra mati verið of hörð við þá til að verja íslenska hagsmuni. Mér fannst þetta óvanalegt, þetta höfum við ekki séð áður og er fordæmalaust. Að á þessum dögum kosningabaráttu lýðræðisríkis séu erlendir aðilar að reyna að blanda sér inn í hana.“

Sigurður Ingi er ánægður með kosningabaráttuna og gengur sáttur til …
Sigurður Ingi er ánægður með kosningabaráttuna og gengur sáttur til kosninga. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson
Hjónin Sigurður Ingi og Elsa á kjörstað.
Hjónin Sigurður Ingi og Elsa á kjörstað. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert