Guðni boðar til blaðamannafundar

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun í dag, föstudaginn 25. nóvember 2016, eiga fund með Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Fundur þeirra hefst kl. 10:00 á Bessastöðum.

Forseti mun síðan ræða við fjölmiðla á Bessastöðum kl. 11:00.

Katrín sleit stjórnarmyndunarviðræðum við Pírata, Viðreisn, Samfylkingu og Bjarta framtíð á miðvikudag. Í gær átti hún fund með Guðna þar sem þau fóru yfir stöðuna. Hún nýtti svo gærdaginn til að ræða við formenn annarra flokka. Í samtali við mbl.is í gærkvöld sagði hún að fáir kostir væru í stöðunni.

Kl. 9 í morgun hófst svo fundur hennar með þingflokki Vinstri grænna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert