Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, á von á því að flokkurinn muni ekki halda prófkjör í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar.
Þetta kom fram í viðtali við Unni Brá í þættinum Vikulokunum á Rás 1. Unnur Brá segir að hún hefði viljað prófkjör en það væri því miður ekki tími fyrir slíkt enda kosningar 28. október, eftir fimm vikur. Hún á von á því að skipa baráttusæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í kosningunum en hún skipaði fjórða sæti listans í fyrra. Þá hafði hún verið
í fjórða sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosning færð upp úr fimmta sæti í það fjórða eftir að Ragnheiður Elín Árnadóttir hafnaði fjórða sætinu.