Ólafur Ísleifsson hagfræðingur verður oddviti hjá Flokki fólksins í komandi alþingiskosningum. Ekki kemur fram í fréttatilkynningu frá Flokki fólksins í hvaða kjördæmi Ólafur muni leiða lista flokksins. Ólafur starfar sem framkvæmdastjóri gæðamála við Háskólann á Bifröst.
Ólafur Ísleifsson hefur lokið doktorsprófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann er með meistarapróf í hagfræði frá London School of Economics and Political Science og BS-próf í stærðfræði frá Háskóla Íslands.
„Ólafur starfaði um tíu ára skeið sem lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur að baki fjölþætta starfsreynslu á sviði fjármála og efnahagsmála á vettvangi Seðlabanka Íslands, Þjóðhagsstofnunar, forsætisráðuneytisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,“ segir í fréttatilkynningu frá Flokki fólksins.