Ekki sá Vilhjálmur Bjarnason

Vilhjálmur Bjarnason þingmaður kveðst ætla að fjölga þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í …
Vilhjálmur Bjarnason þingmaður kveðst ætla að fjölga þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í Kraganum um einn á næsta kjörtímabili. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég hef heyrt þennan misskilning,“ segir Vilhjálmur Bjarnason alþingismaður, er hann er spurður hvort hann ætli að ekki að gefa kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum.

Hið rétta sé að nafni hans Vil­hjálm­ur Bjarna­son, lög­gilt­ur fast­eigna­sali og varaformaður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna, sem einnig hefur áður boðið sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjördæminu ætli ekki að gefa kost á sér.

Sjálfur kveðst Vilhjálmur ætla að gefa kost á sér og stefnir raunar að því að fjölga þingmönnum Sjálfstæðisflokksins um einn í kjördæminu á næsta kjörtímabili. Þannig að þeir verði sex í stað fimm nú.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert