Katrín ræddi við Guðna í morgun

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Ljósmynd/Forseti Íslands

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands hittust á skrifstofu forsetans á Sóleyjargötu.

Rætt var um viðræður hennar, Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formanns Framsóknarflokksins, undanfarna daga, og þau áform að þessir þrír flokkar haldi ríkisstjórnarsamstarfi áfram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands. 

Þar segir einnig að forsetinn muni halda áfram að fylgjast með framvindu stjórnarmyndunarviðræðna. 

Katrín, Bjarni og Sigurður sitja nú á fundi í Ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu og ræða sín á milli um mögulegt stjórnarsamstarf. 

Uppfært 11:55

Upphaflega sagði í fréttinni að Katrín og Guðni hefðu fundað á Bessastöðum. Rétt er að þau funduðu á skrifstofu forsetans á Sóleyjargötu og er það hér með leiðrétt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert