Framsókn vill þrjú þúsund íbúðir á ári

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík.
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík. Ljósmynd/Framsóknar flokkurinn

Þrjú þúsund íbúðir á ári, þéttari byggð, skilvirk Borgarlína, endurvakning næturstrætó, hærri frístundastyrkur, ókeypis í sund fyrir börn, lækkun fasteignagjalda á fyrirtæki og bættur stuðningur við eldra fólk í heimahúsum.

Þetta eru meðal annars þau málefni sem Framsóknarflokkurinn í Reykjavík vill leggja áherslu á á næsta kjörtímabili. Flokkurinn kynnti lista yfir málefnaáherslur sínar á blaðamannafundi fyrr í dag, en tíu dagar eru til kosninga.

„Við í Framsókn bjóðum fram krafta okkar til að vinna fyrir alla borgarbúa að því að gera borgina okkar betri. Við trúum því að meiri samvinna og meiri sátt geri borgina okkar enn betri,“ segir í tilkynningu flokksins.

Hægt er að kynna sér framboð flokksins betur á vefsíðu hans en í tilkynningu er eftirfarandi listi gefinn:

Húsnæðismál eru velferðarmál

  • Við í Framsókn viljum húsnæðissáttmála til að ná jafnvægi í húsnæðismálum.
  • Við viljum byggja meira, hraðar og fjölbreyttara. Markmiðið er 3000 íbúðir á ári.
  • Við viljum þétta byggð þar sem innviðir leyfa og í aukinni sátt við íbúa.
  • Við viljum byggja nýtt hverfi að Keldum og auka byggð í Úlfarsárdal.

Samgöngumál

  • Við í Framsókn viljum tryggja framgang Samgöngusáttmálans.
  • Við í Framsókn viljum öfluga uppbyggingu almenningssamgangna og skilvirka Borgarlínu.
  • Við í Framsókn viljum öfluga uppbyggingu hjóla- og göngustíga og styðjum deilihagkerfi í samgöngum.
  • Við í Framsókn viljum flýta Sundabraut.
  • Við í Framsókn viljum endurvekja næturstrætó.

Hagsmunir barnanna okkar eru hagsmunir framtíðarinnar

  • Við í Framsókn viljum hækka frístundastyrk í 75 þúsund krónur. 
  • Við í Framsókn viljum að börn í grunn- og framhaldsskóla fái ókeypis í strætó og að börn yngri en 18 ára fái ókeypis í sund.
  • Við í Framsókn viljum eyða biðlistum eftir leikskólaplássum og auka sveigjanleika í opnunartíma án þess að lengja skóladag barna.

Menning og listir eru lífsgæði

  • Við í Framsókn viljum efla bókasöfn sem menningarmiðstöðvar í öllum hverfum og efla menningar- og listahátíðir í Reykjavík.

Öflugt atvinnulíf er undirstaða velferðar

  • Við í Framsókn viljum lækka fasteignagjöld á fyrirtæki og styðja við frumkvöðla-, nýsköpunar- og þróunarfyrirtæki innan borgarmarkanna.

Það á að vera gott að eldast í Reykjavík

  • Við í Framsókn viljum bæta stuðning við eldra fólk þannig að það geti búið sem lengst heima.
  • Við viljum fjölga valkostum í matarþjónustu fyrir eldra fólk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert