Sé einhver að leita að jólagjöf handa þeim sem á allt væri upplagt að skella sér á huggulega þúsundfætlu eða jafnvel kakkalakka. Nú er hægt að virða fyrir sér og kaupa mikið af framandi skordýrum í gæludýraversluninni Fiskó í Garðabæ sem finnast ekki í íslenskri náttúru.