Ný og endurbætt lokuð deild var tekin í notkun á Stuðlum í dag. Búið er að fjölga herbergjum um eitt þannig að nú eru rými fyrir 6 börn en á áður hýsti hún 5 börn og þá er búið að kynjaskipta deildinni. Einnig tekið í notkun sérstakt neyðarrými sem hefur ekki verið til staðar hingað til.