Drónar sveimuðu yfir París, höfuðborg Frakklands, í nótt. Þetta er önnur nóttin í röð sem óþekkt flygildi láta á sér kræla. Ekki er vitað með vissu hversu margir drónar voru á ferðinni í nótt en fimm tilkynningar bárust, annars vegar frá almennum borgurum og hins vegar frá lögreglu.