Á röntgendeild bíða um 3000 manns eftir myndgreiningarrannsókn, hundruð sýna hafa verið tekin úr líffærum sem bíða greiningar og nokkur þúsund blóðsýni eru í frysti á víð og dreif um Landspítalann sem bíða skoðunar. Svona er staðan á sjúkrahúsinu þegar farið er að líða á fimmtu viku verkfalls.