Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði að Þjóðverjar myndu hafa „uppbyggilegt“ hlutverk í viðræðum Breta við Evrópusambandið þegar hún hitti David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, í gær. Hún sagði að þar sem vilji væri fyrir hendi væri hægt að koma ýmsu til leiðar.