Ásgeir Valur Kjartansson er ellefu ára gamall hjartveikur hlaupagarpur. Hann hyggst hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir Neistann, félag hjartveikra barna. Ásgeir stundar íþróttir af kappi og hefur auk þess háleit markmið hvað varðar atvinnulífið.