„Ég verð eiginlega að vera alveg hreinskilinn, ég veit ekki neitt eiginlega,“ segir Jón Gunnar Ingólfsson, nemandi í Flensborgarskólanum, spurður um hvað hann viti um flóttamannavandann. Þetta sé algengt hjá ungu fólki sem gjarna sé upptekið af sjálfu sér, málefnið var til umræðu á afmæli skólans.