„Það er gaman að vinna á karlavinnustað, ég svosem þekki ekkert annað,“ segir Ásta Marý Stefánsdóttir, vélvirki hjá Marel. Hún myndi þó vilja sjá fleiri konur í greininni en hún fór í námið eftir að hafa verið á vélaverkstæði föður síns frá blautu barnsbeini. Utan vinnu er hún í krefjandi söngnámi.