Stærstu hagsmunasamtök byssueigenda í Bandaríkjunum, NRA, hafa lýst yfir stuðningi við Donald Trump í forsetakosningunum í Bandaríkjunum seinna á árinu. Að mati þeirra þurfa byssueigendur í landinu að sameinast bakvið Trump eða „kyssa byssurnar bless“.