„Við erum eiginlega alltaf í vinnunni. Þegar við vöknum á morgnana og sofnum á kvöldin erum við yfirleitt að ræða um einhverja hönnun eða hvað við ætlum að gera næst,“ segir Ágústa Magnúsdóttir, sem rekur hönnunar- og framleiðslufyrirtæki ásamt manni sínum Gústav Jóhannssyni en þau selja mest til útlanda.