Forsetaframbjóðandinn Sturla Jónsson á að baki langa stjórnmálabaráttu en þó ekki hefðbundinn stjórnmálaferil. Hann lét fyrst að sér kveða í tengslum við mótmæli vörubílstjóra í Ártúnsbrekku árið 2008 þar sem háum olíusköttum og reglum um hvíldartíma atvinnubílstjóra var mótmælt.