Fjölmiðlar hafa keppst við að kanna staðhæfingar Hillary Clinton og Donalds Trump, forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum, eftir fyrstu kappræður þeirra í nótt. Flestar staðhæfingar Clinton virðast hafa verið réttar á meðan margar fullyrðingar Trumps hafa verið hraktar.