Yfirvöld í Frakklandi segja að búið sé að flytja á brott alla íbúa flóttamannabúðanna í Calais, sem í daglegu tali hafa verið nefndar Jungle-búðirnar. Búið er að flytja 4.404 hælisleitendur í flóttamannamiðstöðvar víðs vegar um Frakkland, en talið er að hluti íbúa hafist nú við undir berum himni.