Fjölmargir Ítalir gistu í neyðarskýlum í nótt eftir harða jarðskjálfta í gærkvöldi. Það var mörgum til happs að hafa flúið að heiman eftir fyrri skjálftann þegar sá síðari, 6,1 stig, reið yfir tveimur tímum síðar. Bæjarstjórinn í Ussita segir bæinn búinn að vera, en mörg hús jöfnuðust við jörðu.