„Þau eru bæði mjög hress, þau gætu verið svona ofurdúó,“ sagði Logi Pedro um Eirík og Melkorku sem háðu söng-einvígi í sjónvarpsþáttunum The Voice. Eiríkur hafði betur, en hann býr að margra ára reynslu bæði á sviði sem trúbador og á bak við myndavélina sem upptökumaður.