Farið var með ösku Fidel Castro, hins látna leiðtoga Kúbu, á táknrænan fund við byltingarbróður hans Ernesto „Che“ Guevara í grafhýsi hans í Santa Clara á Kúbu skömmu eftir miðnætti. Gröf Guevara var fyrsta stoppið á ferðalagi með jarðneskar leifar Castros um eyjuna áður en hann verður jarðsettur á sunnudag.