„Umhverfismálin eru sennilega mikilvægasta málið inn í framtíðina,“ segir Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar. Flokkurinn líti svo á að þau ásamt heilbrigðismálum séu stór mál sem þurfi að sinna vel og að því hafi hann sótt það fast að fá þau ráðuneyti. Hann á von á góðu samstarfi við þingið.