„Nú ætlum við að nota dagsbirtuna til þess að leita hérna í kringum Hafnarfjarðarhöfnina og það verður leitað með bátum, gönguhópum og jafnvel drónum,“ sagði Lárus Steindór Björnsson, svæðisstjóri björgunarsveita, þegar leit var að hefjast að Birnu Brjánsdóttur í morgun. Um 50-60 manns leita.