Systurnar Katla og María Krista Hreiðarsdætur eru miklir snillingar eins og margir vita en þær eru konurnar á bak við verslunina Systur og makar sem er í Síðumúlanum. Að auki eru þær með Krista Design og Volcano Design sem þær selja einmitt í verslun sinni. Systunar eru þekktar fyrir að vera afskaplega skemmtilegar og skapandi og fylgjendur þeirra á Snapchat skipta þúsundum.