Síðustu fjórar vikur höfðu Snorri Rafnsson, sem þekktur er sem Vargurinn, og faðir hans fylgst með haferni í nágrenni Ólafsvíkur sem virtist heldur máttfarinn. Nokkrum sinnum hafði Snorri reynt að nálgast fuglinn en aldrei orðið ágengt fyrr en á fimmtudaginn þegar honum tókst að handsama fuglinn.