Rannsóknarnefndin um sparisjóðina vildi lítið tjá sig um málin sem send voru til saksóknara í dag þar sem það gæti spillt rannsóknum. Þá voru nefndarmenn spurðir af hverju víða væri fjallað nafnlaust um einstaklinga og fyrirtæki sem þeir sögðu að væri vegna samkeppnissjónarmiða og annarra hagsmuna.