Vegfarandi um Hvalvík náði í gær myndbandi af því þegar stærðarinnar aurskriða féll úr Árnesfjalli á Ströndum. Talið er hugsanlegt að skriðuföllin hafi geta byrjað vegna þess að klaki hafi sprengt fram. Björn Torfason bóndi á Melum sagði engu líkara en fjallið hefði hreinlega sprungið.