Skýjakljúfurinn sem þekktur er undir nafninu Gherkin í London er nú kominn á sölu, en hann er staðsettur í miðju fjármálahverfi borgarinnar. Gert er ráð fyrir að fjárfestar frá Asíu eða Bandaríkjunum muni kaupa turninn, en verðmiðinn er um 650 milljónir punda.