Vísindamenn flugu yfir Bárðarbungu fyrir hádegi í dag til að skoða sigkatla sem þar hafa myndast í jarðhræringum að undanförnu. Ferðin staðfesti niðurstöður gærdagsins og að þeim atburðum sem mynduðu katlana sé lokið, því sé engin bráðavá tengd myndun þeirra.