Hellar á Mars?

Mynd tekin úr könnunarfarinu Rosetta af Mars.
Mynd tekin úr könnunarfarinu Rosetta af Mars. AP

Vísindamenn sem skoðað hafa myndir frá geimfarinu Odyssey telja sig hafa fundið innganga að sjö hellum á yfirborði Mars. Hellarnir eru í hlíðum eldfjallsins Arsia Mons og eru nægilega djúpir svo að gólf þeirra sjást ekki frá hellismununum.

Fréttavefur BBC segir frá því að þetta hafi verið kynnt á tungl- og reikistjörnurástefnu sem nú stendur yfir í Houston í Bandaríkjunum.

Vísindamennirnir segja uppgötvunina afar merkilega þar sem slíkir hellar geti mögulega verndað frumstæðar lífverur frá ör-loftsteinum, útfjólublárri geislun og öðru sem herjar á yfirborð mars og gerir reikistjörnuna ólífvænlega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert