Vodafone lækkar verð á símtölum í útlöndum

mbl.is

Viðskiptavinir Vodafone á Íslandi munu frá og með 1. janúar greiða mun minna fyrir símtöl í útlöndum en hingað til. Viðskiptavinir félagsins munu þá njóta kjara sem ákveðin voru í reglugerð ESB um verð á reikiþjónustu í aðildarlöndum sambandsins, þótt reglugerðin hafi ekki fengið lagagildi á Íslandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Auk þess að gilda í löndum Evrópusambandsins mun sama verð gilda í Sviss, Færeyjum, Grænlandi, Noregi og Lichtenstein.

Vodafone hefur frá því reglugerð ESB var samþykkt unnið að því, að tryggja sínum viðskiptavinum sömu kjör og íbúum aðildarlandanna.  Reglugerðin kveður á um hámarks heildsöluverð á þjónustunni milli fjarskiptafyrirtækja og hámarks smásöluverð til neytenda, en evrópskum fjarskiptafyrirtækjum er hins vegar ekki verið skylt að selja þjónustu sína á umræddu verði til símafyrirtækja utan ESB. Þess vegna hefur ekki verið hægt að bjóða íslenskum farsímanotendum bestu möguleg kjör á ferðalögum sínum um Evrópu fyrr en nú.

Verðlækkun á farsímaþjónustunni er misjafnlega mikil eftir löndum, en er í öllum tilvikum umtalsverð. Skilgreint smásöluverð á farsímaþjónustunni er 49 evrusent (0,49 €) fyrir mínútuna þegar hringt er úr farsímanum, en 24 evrusent  (0,24 €) þegar símtal er móttekið. Upplýsingar um núverandi verð á farsímaþjónustu í einstökum löndum er að finna á http://www.vodafone.is/reikiverd. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert